13. júlí 2006 klukkan 07:56
Í dag tók ég mjög stórt skref í lífi mínu, og sagði upp í þjóninum á Nordica hotel. Sérstaklega útaf því að þetta virkaði ekki eins og ég sá það fyrir mér og þá ætla ég bara að vinna núna fram að næsta ári og kíkja jafnvel út þá. Langar mjög mikið að fara eikkað út og slæpast, finna sjálfan mig og allt það.
Fara frá þessu sveitalífi og kynnast stórborginni, that´s a real adventure!!
Allir velkomnir með hehe.....
....helgin er liðin og var ég að vinna alla helgina í "gömlu vinnunni". Það var styrktarball hjá Samtökunum á laugardaginn og fór ég þangað eftir vaktina og skemmti mér rosavel, hitti skemmtilegt fólk og var voða sáttur með kvöldið bara.
Svo núna framundan verður unnið í nýju vinnunni og reynt að finna veginn að velgenginni, og náttla djamm um helgina:)